(function() { var a=window;function e(b){this.t={};this.tick=function(c,h,d){d=d?d:(new Date).getTime();this.t[c]=[d,h]};this.tick("start",null,b)}var f=new e;a.jstiming={Timer:e,load:f};try{a.jstiming.pt=a.gtbExternal&&a.gtbExternal.pageT()||a.external&&a.external.pageT}catch(g){};a.tickAboveFold=function(b){b=b;var c=0;if(b.offsetParent){do c+=b.offsetTop;while(b=b.offsetParent)}b=c;b<=750&&a.jstiming.load.tick("aft")};var i=false;function j(){if(!i){i=true;a.jstiming.load.tick("firstScrollTime")}}a.addEventListener?a.addEventListener("scroll",j,false):a.attachEvent("onscroll",j); })(); " /> Nöldur & ljótar hugsanir..!

mánudagur, febrúar 12, 2007

Ég er flutt

Posted by Ragnheiður @ 10:52 :: (0) comments

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Má ég kynna nýjasta meðlim kastalans.




Búið var að gefa honum nafnið Mozart þegar við fengum hann, en það á eftir að koma í ljós hvort að það festist við hann, allar tillögur eru þegnar í kommentakerfið.

Posted by Ragnheiður @ 23:20 :: (4) comments

laugardagur, febrúar 03, 2007

Ætli það sé þörf á nýjum áfanga í iðnskólum landsins? Áfangi sem heitir dagatalið og klukkan og hvernig svoleiðis brúkast?
Tja ég spyr.... það áttu að koma málarar og mála vinnustaðinn um miðjan desember. Þeir sáust í gær og það er víst bara ekkert athugavert við þetta. Og fyrirvarinn var svo ekkert agalegar þegar til kom. Ég fékk að vita kl. tvö að þeir ættu að koma klukkan fjögur. Að pakka saman heilli skrifstofu er bara ekkert grín.
Einu sinni bað ég um rafvirkja og hann átti að koma innan klukkustundar, þetta var eiginlega neyðartilfelli þannig séð, hann kom eftir 2 daga.
Vinkona mín þurfti að fá pípara vegna þess að klósettið hjá henni stíflaðist. Hún þurfti að banka upp hjá nágrönnunum í þrjá daga því að aldrei sást helvítis maðurinn. Önnur sem ég þekki þurfti að láta flísaleggja hjá sér baðið, maðurinn kom í svona korter og hvarf svo í kannski fjóra daga, og svona hélt þetta áfram lengi lengi. Ég væri búin að kaupa mér hengilás á klósettið og læsa kallinn inni bara.

Hnuss..!

Posted by Ragnheiður @ 12:43 :: (0) comments

föstudagur, janúar 26, 2007

Hér kemur bara væl, tuð og nöldur. Ef þið nennið ekki að lesa þetta þá vinsamlegast nagið þröskuldinn.

Það er hætt að framleiða pilluna mína. Já pilluna MÍNA. Sem er búin að vera mín stoð og stytta í mörg ár og veita mér betra líf. Jú ég er á einhverju helvíti núna sem á að vera eins, en miðað við ástandið líkamlega og andlega er það bara eitthvað í nösunum á einhverjum nýútskrifuðum lyfjafræðingi. Glætan sko.

Svo fer allt í pirrunar á mér og aðstæður bjóða sko upp á það.
T.d. veðrið. ok. ég veit... ég bý á Íslandi, en kommon!
Helvítis umferðin er að gera mig geheheheðveika.
Það er búið loka útvarpstöðinni minni og það er bara ekkert fyrir mig að hlusta á þegar ég sit föstu í helvítis umferðinni.
Já og af hverju er aldrei neitt í sjónvarpinu á þriðjudögum?!?

Því er nú helvítis verr og miður að þegar ég er svona í skapinu að ég læt allt flakka á lilla bró. Sem betur fer er hann að vinna vaktavinnu þannig að hann verður lítið var við þetta. En þar sem uppsöfnuð gremja safnast fyrir eins og aska í öskubakka þá getur þetta orðið frekar nastý, já og það þarf stundum að losa úr honum. Þá er það sem hendi er næst sem fá að finna fyrir því, nefnilega vinnufélagarnir. Ég er samt eiginlega búin að steinhalda kjafti núna þessa vikuna og er bara tvisvar búin að urra á einhvern. Mér fannst samt að þeir ættu það alveg skilið.

Snapp nr. 1

Mánudagsmorguninn var undirlagður tuði og meira tuði í einum sem þoldi ekki að maður sem er ríkari heldur en allir í fyrirtækinu tíu sinnum og ættingjar þeirra til samans á mikinn pening og tuðaði mikið yfir afmælisveislunni hjá manninum. Einnig fór mikill tími og orka í það að nöldra yfir jakkafataklæddum mönnum á tónleikum erlendis, flottræfilsháttur þetta.. gætu sko verið í gallabuxum eins og við hin.
Svona til að setja þessa afmælisveislu í samhengi, þá er það bara eins og ég hefði pantað pizzu á afmælisdaginn minn.
Já og þessi maður verslar ekki í Bónus. Hann heldur nefnilega með Davíð vini sínum og verslar ekki hjá svona óþjóðalýð.
-kræst sko! öllu er hægt að nöldra yfir!
Pólítískt viðrini.

Snapp nr. 2

Það var einn sem kvartaði alveg ógurlega yfir því að ljósritunarvélin væri bara ónýtt skran og ég ætti að fara ekki seinna en strax að kaupa nýja. Snillingurinn setti samanheftuð blöð í matarann.
Þegar hann stoppaði ekki eftir að ég var búin að redda málunum, gargaði ég á hann
-Kræst! Þú hegðar þér eins og versta kelling! (þarna sá ég minn mann reka upp stór augu og neðri vörin tók smá titring)ég reyndi svosem að bjarga mér fyrir horn með því að segja að ég væri eina kellingin þarna og því með einkarétt á tuði. Held að þessi bjóði ekki góðan daginn næstu mánuði.

En eins og mér sé ekki nákvæmlega slétt sama núna.

Og hvað er málið með þennan ótalandi í sjónvarpsmarkaðinum á Skjá 1 eða vörutorginu eða hvað sem þetta heitir. Hver í helvítinu Talar. Svona. Punktur. Á. Eftir. Nánast. Hverju. Einasta. Orði.
Já og þegar maður tekur að sér svona vinnu þá á maður nú að vita hvað maður er að selja. Hvað er til dæmis serlólít? Það er í auglýsingunni fyrir tækið sem á að hrista spikið af heimsku fólki sem heldur að þannig virki.

Já og segið mér... hvernig í helvítinu stendur á þvi að fyrirtæki hér í bæ sem er með alveg yndislega gjaldkera og yndislega þjónustufulltrúa skuli vera með starfsfólk með hland í hausnum í fyrirtækjaþjónustunni.

Posted by Ragnheiður @ 00:32 :: (3) comments

mánudagur, janúar 22, 2007

Ef einhver kann að víkka út borderana
<------------------------------------------------->
Þá er hjálp vel þegin.

Posted by Ragnheiður @ 22:03 :: (1) comments

Stolið og stælt af erluperlu

Posted by Ragnheiður @ 21:53 :: (0) comments

laugardagur, janúar 20, 2007

Arriba! Arriba! Andalay! Andalay!

Undirrituð er að fara til Barcelona í apríl! vííí... og Gnesan mín ætlar að koma með mér. Hún var þarna úti í málaskóla þannig að hún ætti að vita hvar allar bestu búðirnar eru og allir bestu staðirnir.
Væri alveg til í smá sól núna strax samt. Er búið að vera aðeins of kalt hérna á klakanum fyrir minn smekk.

Hvað er annars í fréttum... jú ég er orðin árinu eldri. Leitaði mikið í speglinum en fann enga nýja hrukku né nýtt grátt hár. Það er líka ekkert merkilegt við að verða 27. Hugsa enn til hryllings þegar ég varð 25. Held að 30 ára afmælisdagur sé samt ekki góður, óska eftir miklu af áfengi á þeim degi.

Erla kom svo með stúlku núna í vikunni. Kíkti á hana í gær og hún er alveg eins og pabbi sinn.
Svei mér þá ef hún er ekki fallegasta ungabarn sem ég hef séð. Alveg slétt og er mikið að spá í umhverfinu.

Það er auðvitað búinn að vera mikill spenningur í kringum barnið upp í vinnu því að það eru sex ár síðan það kom síðast barn í deildinni okkar. Þegar ég heyrði að þetta væri farið af stað hjá henni fór ég niður og tilkynnti þetta. Sat svo í smók með þeim öllum og fékk að heyra hverja fæðingarsöguna á eftir annari. Klipptar píkur, rifnar píkur, öskur, blóð og læknar þefandi af legvatni er ekki gott fyrir manneskju eins og mig sem er ekkert búin að fara í þennann pakka. Hef sjaldan setið með lærin jafn kyrfilega krosslögð og þarna um daginn.

Meiri gleðifregnir. Bíllinn er hreinn!
Fór í dag til að leita að núllum og þar sem ég er með nefið ofan í bókhaldinu og ekki viðræðuhæf af því að ég var svo mikið að spá, kemur ein elskan og vill fá bíllyklana mína, hann sé fyrir. Ég rétti honum þá bara án þess að kíkja upp úr pappírunum, spái bara ekki í þetta meir... fyrr en ég fatta að það er ekki sjens að burrus hafi verið fyrir. Kíki fram og þá er búið að þrífa kvikindið fyrir mig.
Fleygi í köku við nennu.

Posted by Ragnheiður @ 21:30 :: (0) comments

þriðjudagur, janúar 09, 2007

víííí..!

Akkuru ískrar í mér...? já sko... ég er búin að fá fartölvu.
Aldrei að vita nema að ég verði duglegri hér.

En með þessari fjárfestingu minni sé ég fram á að koma alltaf of seint í vinnuna núna á næstunni... ekki var ábætandi samt... jú... nú fer ég í það að skoða Fréttablaðið á netinu áður en ég fer af stað. Saknaði þess alltaf eftir að ég flutti hérna í Kastalann. þ.e. að skoða Fréttablaðið, eða blað yfirhöfuð. Glætan að ég eyði dýrmætum mínútum í það að fara upp og niður stigann fyrir eitt blað.
Ég finnst ég vera mest dugleg þegar ég nenni bæði að blása OG slétta á mér hárið á morgnana.

Það er hálf sorglegt hérna í kastalanum eftir að jólaskrautið var tekið niður og bara vondir molar eftir í nammiskálinni.
Þeir eru meira að segja það vondir að ég í þynnkunni á laugardaginn hafði ekki áhuga á þeim. Þá er mikið sagt.

Posted by Ragnheiður @ 22:45 :: (0) comments

föstudagur, desember 29, 2006

Gleðilega rest gott fólk..!

Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist þegar ég ýti á "publis post" hvort að það sé eitthvað þægara hér í foreldrahúsum heldur en í Kastalanum heima.

Á þessum árstíma fylgir auðvitað að segja frá gjöfunum sem maður fékk...
æi... nenni ekki. En ég fékk alveg fullt af æðislegum hlutum... en kannski það sem vakti mesta lukku þessi jólin var svona neon bleikur stressbolti, úr svona slepjugúmmíi sem hægt er að teygja og toga á alla kanta. Boltanum er búið að misþyrma svo agalega undanfarna daga að andlitið er farið af og það er komið gat á hann. Gatið leiddi svo annað enn miklu miklu miklu skemmtilegra í ljós... sko þegar kvikindið er kreist... byrjar að sjást í smá hvítt sem stækkar svo í risabólu sem lætur svo undan (fæ bara unaðshroll við tilhugsunina. Ég hélt alltaf að ég hefði erft bólufetishið frá henni móður minni, en þegar ég var að leika mér að gatinu í annað sinnið, stynur upp úr föður mínum í andakt sem sat við hlið mér...
-noh! þetta var bara eins og fílapensill!

Já það er ósköp lítið sem þarf til að gleðja mitt hjarta!

Posted by Ragnheiður @ 00:45 :: (0) comments

mánudagur, desember 18, 2006

Hó! hó! hó!

Nei nei... jólaskapið er ekkert komið enn, eins og vanalega. Er samt búin að kaupa allar gjafir og meira að segja pakka inn öllu sem á að komast til skila hérna á höfuðborgarsvæðinu. Lærði það af harðri reynslu að vera ekkert að pakka niður gjöfum sem þarf svo að velkjast í ferðatösku í mislangan tíma.

En ég er nú svosum búin að stússast hellings í kringum jólin. Meira að segja eitt stykki jólaball... með tilheyrandi jólasveinum... má til með að segja frá einu...
Þegar ballið var búið, lumma ég mér fram hjá frænku minni til að gera upp við jólasveinana. Þeir þurfa víst að kaupa sitt í Bónus núna, alveg eins og við öll hin.
Ég banka á hurðina og spyr - Strákar! Eruð þið dísent? Já já er svarað þannig að ég fer inn. Situr þá ekki einn jólinn á brókinni, klappar á lærið á sér og strýkur yfir skeggið... koddu hérna gæskan... Bad Santa hér!
Þetta bjargaði alveg fyrir mér desember get ég sagt ykkur... ég hló svo mikið að það lá við að ég hefði sjálf þurft að skipta um brók..!

Posted by Ragnheiður @ 16:33 :: (0) comments

miðvikudagur, desember 06, 2006

Lúði lúði lúði

Ég hef oft og mörgum sinnum fussað með sjálfri mér yfir lúðum sem ég sé oft t.d. í röð í Bónus eða á næstu bensínstöð með id kortið af vinnustaðnum hangandi framan á sér eða út á hlið.
Já ég hef fussað yfir svona liði... meina... lúðinn að taka þetta ekki af sér þegar vinnan er búin. Alltaf gaman að Jón Jónsson er að vinna hjá Jóni Jónssyni við að passa Gunnu Jónsdóttur.

Nú er búið að merkja alla í bak og fyrir á mínum vinnustað. Ég veðjaði við sjálfa mig að ég myndi týna þessu svona c.a. sextíu sinnum áður en nýtt ár liti dagsins ljós.
Kortið hefur ekki enn týnst.... en já og svo .. sko...
Ég þurfti að fara í búð um daginn... eftir vinnu... hallaði mér aðeins yfir afgreiðsluborðið og heyri þá eitthvað skrítið glamur... var ekki alveg að tengja fyrr en ég lít niður.
Helvítis id-kortið danglaði sumsé framan á mér og skall í borðið.

Ég er lúði.

Posted by Ragnheiður @ 23:03 :: (0) comments

föstudagur, desember 01, 2006

Nú sit ég á gamla staðnum mínum... með headsett á kollinum.
Ég var svo innilega búin að gleyma hvað það er mikið stuð hér.

Má til með að deila með ykkur gullkornum dagsins.

Það svaraði ekki hjá einum í dag og kúnninn skildi ekki neitt í þessu.
Hann náði sko í manninn í gær!

Það hringdi ein inn mjög svo óhress. Bíllinn sem hún keypti í sumar er orðinn rúðupisslaus! Ég benti henni á næstu bensínstöð með þetta. Hún varð enn verri því að bíllinn hennar er jú í kaskó!

Mikið svaðalega fannst mér þetta samt krúttulegt.
Hringdi ein og spurði hvort að það væri ekki til spes rúðusköfur fyrir ógeðslega dýra og fína bílinn hjá kærastanum. jú jú... það eru seldar rúðusköfur hér... en þær eru bara þessar venjulegu sem fást á öllum bensínstöðvum.
Henni fannst það voða lummó og lét mig sko heyra það!

Og svo auðvitað uppáhaldið mitt.
-Fá samband við varahlutaverkstæði
-- já hvort er það, varahlutir eða verkstæði?
-já

Posted by Ragnheiður @ 14:09 :: (1) comments

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Ég er svo mikilll sökker...
Ég er svo ógurlega mikill sökker fyrir auglýsingum.
Ég er búin að slefa mikið yfir L'Oreal meikauglýsingunni sem gengur núna... Milla með alveg fullkomna húð eftir sextán tíma á tjúttinu og meira að segja skellir sér í drifhvíta rúllukragapeysu án þess að blikka.
Ég átti einu sinni hvíta rúllukragapeysu. Mikið svakalega vandaði ég mig mikið við að komast í hana.
En já... að sökkernum.
Ég er sumsé búin að bíða alveg óóógurlega lengi eftir því að meikið mitt fari að klárast. Hef sko ekki verið neitt sparsöm með það. Tvær gusur auka á dag er fínt sko... mig langaði nefnilega svo svaðalega mikið í nýja meikið frá L'Oreal.
Ég keypti mér Cosmo síðustu helgi... og það var prufa af hinu ó svo frábæra meiki með blaðinu. Það tísti í mér af æsingi að prufa.
Já það tísti.
Þetta var sko sami liturinn og hún Milla vinkona mín er með... sem ég hélt að væri sko aldeilis fínt. Kannski of ljós, er ekki alveg svona ljós eins og hún.
Nei nei..!
Ég var eins og fífl í framan með grímu.
Issss... hugsaði ég bara með mér. Þarf bara að kaupa ljósara meik.
Lilli bró rak hausinn inn í stofu og hrökklaðist út og spurði hvað í djöflinum ég væri að gera. Lilli bró... jú knóv... ég gæti verið með spöng í hárinu með hreindýrahornum og hann myndi ekki taka eftir því.
Jæja... hvað með það þótt að hann hafi eitthvað verið að tjá sig... hann veit ekki hvað er flott í þessum málum.
Ég var með meik á höndunum þannig að ég fór í það að skola það af.
Þetta var ekki skolað af get ég sagt ykkur. Heldur skrúbbað af með naglaburstanum.
Ég skutlaði líka einni seríu út í glugga þann dag.
Er enn að melta hvernig ég eigi að ná meikblettunum úr gluggatjöldunum án þess að taka allt klappið niður og henda í vélina. Nenni ekki að strauja fleiri fleiri fermetra. Gerði það í sumar.
Hann var heldur ekki lítill þvotturinn sem fór fram seinna um kvöldið. Sápa, hreinsikrem og andlitstoner í fleiri fleiri skipti þar til að þvottapokinn hætti að vera brúnn.

Hí á Millu sko.... sé fyrir mig að það hafi þurft að smúla hana með brunaslöngu eftir auglýsinguna fyrst að ég þurfti að fara í stórtækar aðgerðir eftir eina saklausa prufu.

Posted by Ragnheiður @ 21:25 :: (2) comments

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Ef lífið væri bíómynd...

Rændi þessu af Hafdísi. :)
Held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég geri eitthvað svona. Helvíti sneddí. Þið túlkið svo niðurstöðurnar alveg eins og þið viljið.

En þetta virkar svona.

Ef lífið væri bíómynd - hvernig yrði lagalistinn þinn?

Svona virkar þetta:
1. Opnaðu lagasafnið þitt (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, o.s.frv.)

2. Ýttu á uppstokkun (shuffle)

3. Ýttu á spila

4. Skrifðu nafnið á laginu og listamanninn hjá hverri spurningu

5. Þegar þú færð nýja spurningu ýttu þá á næsta lag

6. Ekki svindla og þykjast vera töff?

Opnunaratriði
: Travis-the Cage
Þegar þú vaknar: Jagúar - Dr Rhythm
Fyrsti skóladagurinn: U2 - One
Að verða ástfanginn: The Beatles ? A Hard Days Night
Slagsmálalag: The Prodigy - Voodoo People (Pendulum Remix)
Að hætta saman: Gnarls Barkley - Transformer
Árshátíð: Frankie Goes To Hollywood - Relax
Lífið: Boston - Peace Of Mind
Andlegt áfall: Damien Rice - The Blowers Daughter
Að keyra: Suede ? Beatiful Ones
Afturhvarf (Flashback): Youssou N'Dour (feat. Neheh Cherry) - 7 Seconds
Að taka aftur saman: Queen - The Loser In The End
Brúðkaup: Sálin Hans Jóns Míns - Uppí skýjunum
Fæðing barns: Placebo - Teenage Angst
Lokabarátta: Billy Idol - Cradle Of Love
Dauðaatriðið: Rob Zombie - More Human Than Human (White Zombie)
Jarðarfararlag: Evanescence - Haunted
Lokalag (þakkarlisti): Nick Cave - Into my arms

Posted by Ragnheiður @ 23:12 :: (2) comments

mánudagur, nóvember 20, 2006

Stundum ætti ég nú bara að kunna að halda kjafti.

Kallarnir í vinnunni ætluðu að skutla nagladekkjunum undir bílinn minn í dag. En það var mikið að gera og ég gleymdist. En eftirfarandi samtal átti sér stað í dag rétt um sexleytið.
-Skrattinn hafi það Ragnheiður! Ég gleymdi þér (Ýmindið ykkur svo kall hoppandi um á öðrum fæti að reyna að koma sér úr vinnugallanum án þess að fara úr skónum)
--Já ekkert mál.
-Í alvörunni. Á ég ekki að reyna að fá einhvern annann í þetta (Svolítið höktandi því að það er erfitt að vera stressaður og reyna að koma sér úr vinnugalla yfir stóra skó)
--Í alvuru... ekki málið.
-Já sko en...
--SKO! ég er að VESTAN og ætti að kunna að díla við smá hálku.

Það þurfti að hjálpa þessari að vestan út úr stæðinu í kvöld.

Posted by Ragnheiður @ 21:07 :: (0) comments

Gestabók


Glugga í Gestabókina
Rita í Gestabókina

Fólk

  • Perlan
  • Tóta
  • Elvis2
  • Annska
  • Hafdís Ósk
  • Icelily
  • Carola
  • Systkinin
  • Fréttir

  • BB
  • MBL
  • Vísir
  • The Onion
  • Ananova
  • Ýmislegt & fleira

  • Pilluáminning
  • Straigth Dope
  • Spámaður.is
  • Snopes.com
  • imdb
  • Forvitnin

  • að skoða bloggið


  • eXTReMe Tracker